TS17 - Laki

Garún er nýjasti bíll Team Spark. Helsta sérkenni hennar er að burðarvirkið er úr koltrefjum í stað stálgrindar. Þessi tegund af burðarvirki nefnist einbolungur (e. monocoque). Auk þess voru gerðar bætur á rafkerfi bílsins, til dæmis er inngjafarmerkjum og nauðsynlegum öryggisbúnaði nú stjórnað með tölvu í stað analog rafrása. Loftflæðipakki bílsins, þ.e. vængir, hliðarsvæði og undirbakki voru gerðir sterkari og léttari ásamt betri greiningum á áhrifum þeirra.

Keppnir

  • Formula Student Spain - Circuit de Catalunya

Upplýsingar

  • 100 kW (130 hö.) Emrax 225 rafmótor
  • 6,2 kWh rafhlöður með 600 V spennu (144 LiPo sellur)
  • A-arma fjöðrunarkerfi með Z-flex veltihemli
  • Keðjudrif með LSD mismunadrif
  • Þyngd 253 kg
  • Hámarkshraði 136 km/klst